Íslenski boltinn

Heimir og Ólafur þjálfarar ársins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafur og Heimir með verðlaunin sín.
Ólafur og Heimir með verðlaunin sín. mynd/twitter-síða kþí
Heimir Guðjónsson og Ólafur Þór Guðbjörnsson voru valdir þjálfarar ársins í meistaraflokkum karla og kvenna af Knattspyrnuþjálfarafélagi Íslands.

Þeir fengu viðurkenningar sínar aðalfundi KÞÍ í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardalnum í gær.

Heimir gerði karlalið FH að Íslandsmeisturum annað árið í röð og í fimmta sinn alls. FH fékk 43 stig í Pepsi-deild karla í sumar, fjórum stigum meira en Stjarnan sem endaði í 2. sæti.

Ólafur stýrði Stjörnunni til sigurs í Pepsi-deild kvenna í annað sinn á þremur árum.

Stjarnan vann 14 af 18 leikjum sínum í Pepsi-deild kvenna í sumar og tryggði sér titilinn með 4-0 sigri á FH í lokaumferð deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×