Fótbolti

Heimir: Smá hroki í þeirra uppstillingu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Heimir og Siggi Dúlla fagna,
Heimir og Siggi Dúlla fagna, vísir/getty
Heimir Hallgrímsson, annar landsliðsþjálfari Íslands, segir að sigur Íslands gegn Englandi í 16-liða úrslitum EM hafi gengishækkað íslenskan fótbolta.

„Verði ykkur öllum að góðu. Þetta var fyrir ykkur. Það er ekkert hægt að segja um þetta nema við erum glaðir," sagði Heimir í samtali við Pétur Marteinsson hjá Símanum í leikslok.

„Ég sagði fyrir leikinn að ef þú vilt það besta úr lífinu þá verðura að vera tilbúinn þegar tækifærið kemur og þetta tækifæri var risa stórt. Strákarnir voru tilbúnir og ég held að þetta verði einn besti dagur í lífi þeirra og okkar allra."

„Þeir eru að gengishækka íslenskan fótbolta gífurlega með þessum sigri og það eiga allir eftir að finna fyrir því. Allir íslenskir leikmenn, öll íslensk félög og allt íþrótta- og fótboltalíf á Íslandi. Þeir eru búnir að gera okkur gríðarlegan greiða þessir strákar."

Enska liðið tefldi djarft og margir sóknarmenn voru í uppstillingunni þeirra. Heimir segir að það hafi verið smá hroki í þeirra uppstillingu.

„Það var kannski smá hroki í uppstillingunni þeirra. Þeir eru með fjóra til fimm framherja og fáa varnarmenn í byrjunarliðinu og við vissum það ef við yrðum slakir á boltanum þá gætum við refsað þeim."

„Þeir héldu áfram að hlaða framherjum inn á völlinn og mér fannst við halda þeim þægilega frá markinu. Ég var ekki eins stressaður í þessum leik eins og á móti Austurríki."

Ragnar Sigurðsson átti rosalegan leik í miðri vörn Íslands. Hann skoraði annað mark liðsins og stoppaði svo hverja sóknina á fætur annari. Heimir hrósaði Ragnari í hástert.

„Ef að þessi frammistaða verðskuldar ekki að það séu stærstu lið í heimi að skoða þennan dreng þá veit ég ekki hvað. Hann og Kári eru búnir að vera frábærir í þessari keppni, en ég hef sjaldan séð jafn góða frammistöðu hjá miðverði og hef ég séð þá nokkra."

Framundan er risaleikur gegn gestgjöfunum í Frakklandi á sunnudaginn í París og Heimir er spenntur fyrir því.

„Nú bara kemur annar stór leikur og annað tækifæri. Við höfum tíma til að undirbúa okkur fyrir það tækifæri. Vonandi verðum við tilbúnir í það líka.

„Fyrst við gátum þetta þá verða allar hindranir miklu minni í huganum hjá öllum þegar sjálfstraust er komið og vinnusemi og dugnaður sem er í þessum strákum sem er banvæn blanda," sagði Heimir við Pétur að lokum.


Tengdar fréttir

Ragnar: Drullusama hverjir þeir eru

Ragnar Sigurðsson átti frábæran leik í hjarta varnarinnar þegar Ísland sló England úr leik í 16-liða úrslitum á EM 2016 í Nice í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×