Fótbolti

Heiðraði Mascherano með furðulegu tattúi | Mynd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mascherano kemur í veg fyrir að Robben skori.
Mascherano kemur í veg fyrir að Robben skori. vísir/getty
Ungur stuðningsmaður argentínska landsliðsins og Javiers Mascherano gekk ansi langt í aðdáun sinni á Barcelona-manninum.

Aðdáandinn fékk sér nefnilega tattú á lærið af frægri tæklingu Mascheranos á Arjen Robben á lokaandartökunum í leik Argentínu og Hollands í undanúrslitum HM 2014.

Aðdáandinn hitti átrúnaðargoðið á dögunum og sýndi honum að sjálfsögðu nýja tattúið.

Þetta ku þó ekki vera skrítnasta tattúið til heiðurs Mascheranos því annar aðdáandi hans er með tattú af honum að rífast við Belgana Axel Witsel og Maraoune Fellaini.

Þessi furðulegu tattú má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×