Fótbolti

Hefur þjálfað Emil í fimm ár en var rekinn í gær

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andrea Mandorlini og Emil Hallfreðsson.
Andrea Mandorlini og Emil Hallfreðsson. Vísir/Getty
Andrea Mandorlini, þjálfari ítalska liðsins Hellas Verona, var rekinn  í gær en liðið hefur enn ekki unnið leik í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili.

Enginn þjálfari í ítölsku deildinni var búinn að vera jafnlengi í starfi en undir stjórn Mandorlini náði Verona liðið 10. og 13. sæti undanfarin tvö tímabil.

Íslenski landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson hefur spilað undir stjórn Mandorlini undanfarin fimm ár og Emil hefur verið í byrjunarliðinu í vetur þegar hann hefur verið leikfær.

Mandorlini fékk Emil fyrst á láni frá Reggina í lok ágúst 2010 en Emil hafði spilað með enska liðinu Barnsley tímabilið á undan.

Saman fóru þeir Emil og Andrea Mandorlini upp um tvær deildir á þremur árum og Hellas Verona hefur spilað í A-deildinni frá haustinu 2013.  Hellas Verona fór strax upp í B-deildina á fyrsta ári og komst síðan upp í A-deildina eftir tvö tímabil.

Hellas Verona tapaði 3-2 á móti Frosinone um helgina og þar fór síðasta hálmstráið fyrir hinn 55 ára gamla Mandorlini. Þetta var þriðja tap liðsins í röð og fimmta tapið í síðustu sex leikjum.

Hellas Verona situr í neðsta sæti deildarinnar með sex stig í fjórtán leikjum en liðið hefur gert 6 jafntefli og tapað átta leikjum.

Tveir þjálfarar koma til greina sem eftirmenn Andrea Mandorlini samkvæmt ítölskum fjölmiðlum en það eru Lucien Favre, fyrrum þjálfari Borussia Mönchengladbach og Eugenio Corini, fyrrum þjálfari Chievo. Favre kom Gladbach-liðinu meðal annars frá botni þýsku deildarinnar og í Meistaradeildina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×