Innlent

Háskólalestin fer af stað um helgina

Sprengjugengið verður með í för.
Sprengjugengið verður með í för.
Háskóli Íslands ræsir svokallaða Háskólalest á föstudaginn kemur en í tilefni af aldarafmæli skólans mun hann ferðast um landið með fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Í Háskólalestinni verða viðburðir og vísindi, fjör og fræði.

Fyrstu áfangastaðir Háskólalestarinnar eru Stykkishólmur og Hvolsvöllur en á ferðaáætlun lestarinnar í sumar eru samtals níu viðkomustaðir. Verkefnið er unnið í samstarfi við Rannsóknasetur HÍ á landsbyggðinni, Háskóla unga fólksins, Vísindavefinn, grunnskóla, sveitarfélög og fleiri.

Heimsókn Háskólalestarinnar á hverjum áfangastað stendur yfirleitt í tvo daga, þann fyrri sækja grunnskólanemar margvísleg námskeið en síðari dagurinn er ætlaður gestum á öllum aldri. Viðkomustaðir lestarinnar verða Stykkishólmur, Hvolsvöllur, Höfn í Hornafirði, Skagaströnd, Húsavík, Bolungarvík, Egilsstaðir, Sandgerði og Seltjarnarnes.

Vísindaveisla í Stykkishólmi 29. og 30. apríl

Í Stykkishólmi býðst nemendum í 5. – 10. bekk grunnskólans að  að sækja valin námskeið úr hinum vinsæla Háskóla unga fólksins föstudaginn 29. apríl. Þar kynnast nemendur japönsku, stjörnufræði, eðlisfræði, nýsköpun, íþrótta- og heilsufræði og jarðfræði.

Að morgni laugardagsins 30.apríl, kl 10:30, er boðið í fuglaskoðun undir leiðsögn sérfræðinga Náttúrustofu Vesturlands og Rannsóknaseturs HÍ á Snæfellsnesi.

Klukkan 12 til 16 verður síðan efnt til sannkallaðrar vísindaveislu á Vísindavöku W23 á Hótel Stykkishólmi. Í fjölbreyttri dagskrá er meðal annars sýning félaga úr Sprengjugenginu landsfræga, eldorgel, stjörnutjald, leikir, japönsk menning, Vísindavefur HÍ og undur jarðar, hafs og himins. Kynntar verða náttúrurannsóknir á Snæfellsnesi, rannsóknarkafbáturinn Gavia verður til sýnis og háfur verður krufinn.

Gestir geta kynnt sér radíósenditækni í minkum og skoðað krabba, fugla, fiska og spendýr svo fátt eitt sé nefnt.

Í stuttum fræðsluerindum kynnast gestir meðal annars bernskubrekum æðarblika, botndýrum við Íslandsstrendur, eðli minksins og ferðum geimfara um himingeiminn.

Hvolsvöllur 1. og 6. maí

Á Hvolsvelli hefur verið undirbúin umfangsmikil dagskrá sunnudaginn 1. maí í Grunnskóla Hvolsvallar  kl. 13 til 17.

Þar verða sýnitilraunir af ýmsu tagi, Sprengju-Kári mætir á svæðið, teikniróla sýnd og stjörnutjald ásamt japanskri menningu.  Vísindavefur HÍ verður á staðnum og kynnt verða undur jarðar og farið verður í spennandi úti- og innileiki fyrir alla fjölskylduna. Tónlist mun óma með eldorgelinu og Ástráður veitir góð ráð um ástina.

Landgræðslustöð ríkisins að Gunnarsholti, Háskólafélag Suðurlands og Rannsóknasetur HÍ á Suðurlandi taka þátt í dagskránni með kynningum og erindum. Meðal efnis sem fjallað verður um er Skógar og aska, Katla geopark, komu farfugla, gosið í Eyjafjallajökli og listina að lífláta lúpínu.

Föstudaginn 6. maí sækja nemendur 5. – 10. bekkjar Hvolsskóla námskeið í Háskóla unga fólksins í stjörnufræði, dönsku, kynjafræði, nýsköpun, jarðvísindum og stjórnmálafræði.

Um miðjan maí verður haldið til Hafnar í Hornafirði, þar næst á Skagaströnd og Húsavík.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×