Tónlist

Harvard-maður hjá Fjármálaráðuneytinu gefur út sólóplötu

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Rennur þægilega niður - Tónlist Ólafs minnir á kvikmyndatónlist.
Rennur þægilega niður - Tónlist Ólafs minnir á kvikmyndatónlist.
„Ég hitti á þetta tómarúm á milli dægurtónlistar og klassískrar tónlistar,“ segir Ólafur Reynir Guðmundsson, lögfræðingur og tónlistarmaður sem hefur nú gefið út sinn fyrsta geisladisk, Upphaf.

„Ég hef tekið eftir því að stemningin minnir fólk á kvikmyndatónlist. Jónas Sen sagði í gagnrýni sinni að þetta væri afar þægilegt og rynni ljúflega niður en það er nákvæmlega það sem ég vildi gera.“

Ólafur er kannski ekki dæmigerður tónlistarmaður þar sem hann vinnur sem lögfræðingur hjá Fjármálaráðuneytinu. „Þetta er bara góð blanda en mér tekst reyndar ekki mikið að semja þar,“ segir hann og bætir við að ástríða hans fyrir tónlistargerð hafi eiginlega kviknað þegar hann stundaði nám við Harvard-háskóla. 

„Þá leigði ég mér risavaxið rafmagnspíanó, fór að leika mér á hljóðfærið og það kallaði á einhverja þörf fyrir að semja,“ segir Ólafur, sem fór brátt að spila í veislum og á mannamótum til að prófa hugmyndir sínar áfram. Þessi fyrsta plata hans markar síðan umgjörð um það sem hann hefur starfað við í tónlistinni undanfarin ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×