Lífið

Harry Potter-leikari látinn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Breski leikarinn Dave Legeno fannst látinn í Death Valley, eða Dauðadal, í Kaliforníu á sunnudag samkvæmt fréttasíðunni TMZ.

Nokkrir göngumenn fundu lík leikarans en að sögn lögreglunnar hafði Dave verið látinn í þrjá til fjóra daga áður en lík hans fannst.

Dave er hvað þekktastur fyrir að leika varúlfinn Fenrir Greyback í Harry Potter-myndunum. Þá hefur hann líka leikið í myndum á borð við Snow White and the Huntsman, Titanic, Snatch og Batman Begins.

Hann skilur eftir sig dóttur á þrítugsaldri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×