Lífið

Harry Potter kann að rappa

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikarinn Daniel Radcliffe, sem er hvað þekktastur fyrir að leika Harry Potter, var gestur í spjallþætti Jimmy Fallon í gær. 

Leikarinn sagði Jimmy frá ást sinni á rappi og auðvitað bað spjallþáttastjórnandinn hann um að rappa í þættinum.

Daniel tók þeirri áskorun og rappaði lagið Alphabet Aerobics með Blackalicious. Sló Daniel vægast sagt í gegn og þegar flutningnum lauk stóðu áhorfendur upp fyrir honum og klöppuðu í sífellu. 

Hér má sjá Daniel hjá Jimmy Fallon:



Hér má hlusta á upprunalegu útgáfu lagsins:








Fleiri fréttir

Sjá meira


×