Fótbolti

Harpa í landsliðið að nýju │ Engin Berglind Björg

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Harpa Þorsteinsdóttir skoraði 10 mörk í aðeins 6 leikjum í síðustu undankeppni landsliðsins fyrir EM 2017.
Harpa Þorsteinsdóttir skoraði 10 mörk í aðeins 6 leikjum í síðustu undankeppni landsliðsins fyrir EM 2017. mynd/ksí/hilmar þór
Freyr Alexandersson tilkynnti á fréttamannafundi í dag 20 manna hóp sem mætir Slóveníu og Færeyjum í undankeppni HM 2019 í Frakklandi. Enginn nýliði er í hópnum í þetta skipti.

Harpa Þorsteinsdóttir er komin aftur í landsliðshópinn en hún hefur ekki verið í hópnum það sem af er ári. Í janúar sagði Freyr að það væri „óljóst hvað verður um hennar feril,“ og vildi gefa henni tíma til þess að vinna úr því.

Sigríður Lára Garðarsdóttir er einnig komin aftur í liðið en hún greindist með liðagigt í byrjun árs og hefur verið fáverandi vegna þessa. Þá er Elín Metta Jensen einnig komin til baka eftir meiðsli.

Þær Selma Sól Magnúsdóttir og Sonný Lára Þráinsdóttir úr Breiðabliki eru með minnstu landsliðsreynsluna en báðar hafa leikið 4 landsleiki. Þá er Valskonan Hlín Eiríksdóttir með 5 landsleiki. Þær voru allar í hópnum sem fór til Algarve í Portúgal í lok febrúar.

Eyjakonan Berglind Björg Þorvaldsdóttir er ekki í hópnum. Hún var ekki valin með á Algarve mótið vegna deilna við þáverandi félag sitt Verona á Ítalíu. Þegar þær deilur leystust fór hún þó á móts við liðið. Arna Sif Ásgrímsdóttir, sem var með Berglindi á Ítalíu, fór ekki til Algarve útaf áðurnefndum deilum. Hún er heldur ekki í hópnum hjá Frey í dag.

Sex leikmenn sem fóru til Algarve eru ekki í hópnum. Það eru þær Anna Rakel Pétursdóttir, Guðný Árnadóttir, Andrea Mist Pálsdóttir, Andrea Rán Hauksdóttir, Sigrún Ella Einarsdóttir og Katrín Ásbjörnsdóttir.

Íslenski landsliðshópurinn sem mætir Slóveníu 6. apríl og Færeyjum 10. apríl er eftirfarandi:

Markmenn: 

Guðbjörg Gunnarsdóttir, Djurgården

Sandra Sigurðardóttir, Val

Sonný Lára Þráinsdóttir, Breiðabliki

Varnarmenn:

Anna Björk Kristjánsdóttir, LB07

Glódís Perla Viggósdóttir, FC Rosengård

Hallbera Guðný Gísladóttir, Val

Ingibjörg Sigurðardóttir, Djurgården

Selma Sól Magnúsdóttir, Breiðabliki,

Sif Atladóttir, Kristianstad

Miðjumenn:

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Utah Royals

Rakel Hönnudóttir LB07

Sandra María Jessen, Slavia Prag

Sara Björk Gunnarsdóttir, Wolfsburg

Sigríður Lára Garðarsdóttir, ÍBV

Sóknarmenn:

Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki,

Elín Metta Jensen, Val

Fanndís Friðriksdóttir, Marseille

Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni

Hlín Eiríksdóttir, Val

Svava Rós Guðmundsdóttir, Roa


Tengdar fréttir

Í beinni: Freyr velur hópinn gegn Slóvenum og Færeyjum

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta spilar tvo leiki í undankeppni HM 2019 í byrjun apríl. Vísir var með beina textalýsingu frá Laugardalsvelli þar sem Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari tilkynnir landsliðshópinn fyrir það verkefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×