Innlent

Harkalegur árekstur norðan Akureyrar

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Betur fór en á horfðist þegar tveir bílar sem komu úr gagnstæðum áttum skullu harkalega saman við Einarstaði og Sílastaði rétt norður af Akureyri á ellefta tímanum.

Einn maður var í hvorum bíl en hvorugur þeirra slasaðist alvarlega. Þeir voru þó fluttir á sjúkrahúsið til aðhlynningar.

Veginum var lokað um tíma á meðan verið var að ná öðrum ökumanninum út úr bílflakinu með klippum og myndaðist löng bílaröð fyrir vikið.

Umferð er nú að færast í eðlilegt horf. Ekki er enn vitað um tildrög slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×