Fótbolti

Hannes stoltur af ferðalaginu en pælir ekkert í stærri klúbbum

Kolbeinn Tumi Daðason í Kabardinka skrifar
Hannes Þór Halldórsson var í góðum gír á blaðamannafundi landsliðsins í morgun.
Hannes Þór Halldórsson var í góðum gír á blaðamannafundi landsliðsins í morgun. Vísir/Vilhelm
Athyglin hefur verið mikil á landsliðsmarkvörðinn Hannes Þór Halldórsson undanfarna daga. Markvörðurinn sem varði frá Lionel Messi spilar með Randers, miðlungsliði í dönsku knattspyrnunnni. Markmannsþjálfari landsliðsins, Guðmundur Hreiðarsson, segir Hannes geta spilað á miklu hærra stigi og svo sem fyrir stærstu félög í heimi.

„Ef ég á að segja alveg eins og er þá er ég ekkert að velta mér upp úr því,“ sagði Hannes um stöðu sína. Guðmundur segist fá fjölmargar fyrirspurnir um Hannes og má telja líklegt að Hannes taki skref upp á við frá Hannes haldi hann áfram að standa sig vel í Rússlandi.

„Ég er ánægður þar sem ég er í mínum klúbbi. Það er góð staða að finna ekki fyrir pressu að fara lengra. Að geta einbeitt sér 100% að því sem er í gangi,“ sagði Hannes.

Hannes Þór Halldórsson með Kára Árnasyni eftir Argentínuleikinn.vísir/vilhelm
„Ef vel gengur geta alls konar dyr opnast. Ef það gerist eitthvað þá gerist eitthvað,“ sagði Hannes yfirvegaður. Hann ætti að þekkja það. Fimmtán ár eru síðan hann var varamarkvörður í Leikni, fékk sénsinn í mikilvægum leik og gerði skelfileg mistök. Í dag er hann að verja víti frá Messi. 

Ótrúleg breyting og spurning hvort leikstjórinn sé ekki farinn að velta fyrir sér hver leiki hann í bíómyndinni sem einhvern tímann verður gerð og hann þá leikstýrir sjálfur.

„Ég hef verið spurður að þessu nokkrum sinnum,“ segir Hannes.

„Þetta er auðvitað ótrúlegt hvernig þetta hefur þróast. 2003 var ég ekki einu sinni að spila hjá Leikni. Það er löng leið að vera kominn hingað og það er eitthvað sem ég er mjög stoltur af. En varðandi bíómyndapælingar, þá verður það bara að koma í ljós.“

Feðgarnir Hannes Þór og Halldór Þórarinsson eftir Argentínuleikinn.Vísir/Vilhelm
Þá var Hannes spurður hvort hann hefði einhverja rútínu á leikdegi sem tæki kannski einhverjum breytingum á stóra sviðinu hér í Rússlandi.

„Ég er ekki með neina fasta rútínu,“ sagði Hannes. „Ég hef svolítið spilað þetta bara eftir eyranu.“

Því stærri sem leikirnir verði því meiri stress og spenna fylgi. Hann sjálfur þurfti frekar að halda spennustiginu niðri.

„Ég þarf ekki að gíra mig upp.“

Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á FacebookTwitter og Instagram.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×