Lífið

Hanna taupoka til höfuðs ofbeldi

guðrún ansnes skrifar
Katla Rós með pokann góða uppá arminn og svo pokana frá árinu 2011 í bakrgrunni.
Katla Rós með pokann góða uppá arminn og svo pokana frá árinu 2011 í bakrgrunni.
„Það getur verið erfitt að gera efni fyrir svona herferðir og komast hjá því að þetta verði of klisjulegt,“ segir Katla Rós Völudóttir, einn hönnuða Stúdíó Steypu sem stendur á bak við Fokk ofbeldi pokana. Eru þeir hannaðir í samstarfi við UN Women á Ísland og rennur ágóðinn til styrktarsjóðs Sameinuðu þjóðanna, þar sem fókusinn er settur á afnám ofbeldis gegn konum. „Við fengum með okkur þrjá atvinnudansara til að móta stafina og svo myndaði Saga Sig fyrir okkur. Við erum reglulega ánægð með útkomuna,“ segir Katla Rós.

Hún segir afar táknrænt og gildishlaðið að nota mannslíkamana í stafagerðina. „Við þurfum að fá fólk til að vinna saman, fólk þarf að taka saman höndum og gera eitthvað í sameiningu.“ Pokarnir munu framleiddir í takmörkuðu upplagi, en gera má ráð fyrir að þeir spænist upp líkt og annað sem Stúdíó Steypa hefur komið nálægt fyrir samtökin. „Við hönnuðum herferðina í kringum armböndin sem komu út fyrr á árinu og þau gjörsamlega seldust upp,“ bendir Katla Rós á og bætir við að þau hafi einnig hannað pokana sem komu út árið 2011 og þóttu afar eftirsóknarverðir.

„Fyrir mér eru þetta skemmtilegustu verkefnin, það að gera eitthvað svona sem getur svo gefið jafn ríkulega af sér og raun ber vitni er frábært,“ bætir Katla Rós einlæg við.

Pokarnir fara í sölu um miðbik næstu viku, í svokölluðu Sumarpartýi UN Women þar sem skálað verður í hvítvíni og vonast eftir sumri. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×