Innlent

Hanna Katrín kjörin þingflokksformaður Viðreisnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hanna Katrín Friðriksson
Hanna Katrín Friðriksson Vísir/Ernir
Hanna Katrín Friðriksson hefur verið kjörin þingflokksformaður Viðreisnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.

Hanna Katrín er fædd í París árið 1964, en ólst upp í Reykjavík. Hún er með


MBA gráðu í stefnumótun og breytingastjórnun frá Graduate School of Management, University of California og með BA gráðu í heimspeki og hagfræði frá HÍ. 

Áður en  Hanna Katrín hóf stjórnmálaafskipti með Viðreisn var hún framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs Icepharma. Hún hefur gegnt ýmsum stjórnunarstörfum undanfarna áratugi, meðal annars hjá Eimskip og Háskólanum í Reykjavík. Þá var hún aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra á árabilinu 2007-2009.

Hanna Katrín hefur að auki gegnt fjölda trúnaðarstarfa, meðal annars fyrir íþróttahreyfinguna og Menntamálaráðuneytið.

Maki Hönnu Katrínar er Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi Novator. Dætur þeirra eru Elísabet og Margrét, fæddar árið 2001.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×