Innlent

Handtekinn eftir hópslagsmál í Breiðholti

Sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Rólegt var hjá lögreglunni í nótt.
Rólegt var hjá lögreglunni í nótt. Vísir/Pjetur
Einn var handtekinn eftir hópslagsmál í Breiðholti í nótt. Lögreglu hafði borist tilkynning um áflogin og mætti á staðinn til þess að róa mannskapinn. Sá sem var handtekinn neitaði hins vegar að hlýða fyrirmælum lögreglu og vildi raunar frekar slást við lögreglumenn en að fara af vettvangi. Var hann því vistaður í fangageymslu, að því er segir í dagbók lögreglu.

Nóttin var að öðru leyti róleg en nokkrir voru teknir undir áhrifum áfengis- og fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×