Innlent

Halda námskeið til að efla fátækar konur í Tansaníu til sjálfshjálpar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Magnús Árni Skjöld Magnússon dósent, Eríkur Bergmann prófessor og Anna Elísabet Ólafsdóttir aðstoðarrektor á Bifröst.
Magnús Árni Skjöld Magnússon dósent, Eríkur Bergmann prófessor og Anna Elísabet Ólafsdóttir aðstoðarrektor á Bifröst. mynd/aðsend
Þrír kennarar frá háskólanum á Bifröst lögðu í morgun af stað til Tansaníu, þar sem þau ætla næstu vikur að halda námskeið til að efla fátækar konur til sjálfshjálpar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum.

Námskeiðið kallast Máttur kvenna og hefur verið haldið á Bifröst síðastliðin 10 ár. Það hefur verið aðlagað aðstæðum í Afríku og gengur út á að þjálfa konurnar til að koma auga á viðskiptatækifæri í nærumhverfi sínu og búa þær færni til að koma þeim í framkvæmd.

Myndin var tekin við upphaf ferðarinnar í morgun, frá vinstri Magnús Árni Skjöld Magnússon dósent, Eríkur Bergmann prófessor og Anna Elísabet Ólafsdóttir aðstoðarrektor á Bifröst.

Námskeiðshaldið í Tansaníu er þróunarverkefni hjá háskólanum á Bifröst. Rannsóknir sýna ótvírætt að besta leiðin til að draga úr vannæringu barna er að mennta mæður þeirra. Fjölskyldan öll nýtur góðs af atvinnusköpun kvenna, bætir hag heimilisins, veitir aðgang að heilbrigðisþjónustu og umfram allt stuðlar að menntun barna sem er lykillinn að árangri til framtíðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×