Innlent

Hafa safnað 6 milljónum króna vegna baráttu gegn ebólu

Atli Ísleifsson skrifar
Fjöldi skráðra ebólutilfella í Gíneu, Líberíu og Síerra Leóne er nú kominn í ríflega 14 þúsund.
Fjöldi skráðra ebólutilfella í Gíneu, Líberíu og Síerra Leóne er nú kominn í ríflega 14 þúsund. Vísir/Unicef
Um sex milljónir króna hafa safnast í neyðarsöfnun UNICEF til að efla aðgerðir gegn ebólufaraldrinum í Vestur-Afríku. Söfnunin hófst í október en verður áfram haldið.

Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, segir að ebólufaraldurinn hafi haft grafalvarleg áhrif á líf og framtíð barna á svæðinu og mörg þeirra kljást við mikla andlega vanlíðan eftir það sem þau hafa séð og upplifað. „Börn hafa sjálf veikst af ebólu, misst foreldra sína eða ættingja og farið á mis við snertingu og umönnun sem þau þarfnast. Áætlað að fleiri 7000 börn hafi misst annan eða báða foreldra sína vegna ebólu og jafnframt hafa mörg þeirra þurft að takast á við útskúfun og fordæmingu eftir að hafa náð sér af veikinni.“

Í tilkynningu frá UNICEF segir að fjöldi skráðra ebólutilfella í Gíneu, Líberíu og Síerra Leóne sé nú kominn í ríflega 14 þúsund en að öllum líkindum sé hér um mjög varlega áætlaða tölu að ræða. Börn eru fimmtungur þeirra sem hafa smitast eða um 2800 talsins. Í október hóf UNICEF á Íslandi neyðarsöfnun til að efla aðgerðir sínar á vettvangi gegn ebólufaraldrinum.

Í tilkynningunni segir að UNICEF hafi verið í framvarðasveit í baráttunni gegn faraldrinum frá því fyrstu tilfelli ebólu greindust og hafi samtökin nú þegar dreift yfir 3000 tonnum af hjálpargögnum í þeim löndum þar sem faraldurinn geisar hvað harðast. „Meðal þeirra hjálpargagna sem þegar hafa verið flutt á vettvang eru sjúkratjöld, hlífðargallar, hanskar, öryggisgleraugu, vökvalausnir, lyf, sótthreinsandi efni og faratæki fyrir heilbrigðisstarfsfólk.“

„Ebólufaraldurinn hefur haft grafalvarleg áhrif á líf og framtíð barna á svæðinu og mörg þeirra kljást við mikla andlega vanlíðan eftir það sem þau hafa séð og upplifað. Börn hafa sjálf veikst af ebólu, misst foreldra sína eða ættingja og farið á mis við snertingu og umönnun sem þau þarfnast. Áætlað að fleiri 7000 börn hafi misst annan eða báða foreldra sína vegna ebólu og jafnframt hafa mörg þeirra þurft að takast á við útskúfun og fordæmingu eftir að hafa náð sér af veikinni,“ sagði Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi í erindi á fundi Félags Sameinuðu þjóðanna um ebólufaraldurinn sem haldinn var í Norræna húsinu fyrr í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×