Innlent

Hafa aflýst norðurljósaferðum fyrir hundruð á hverjum degi

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Þegar veðurskilyrði eru góð fara hundruð ferðamanna í norðurljósaferðir á hverjum degi.
Þegar veðurskilyrði eru góð fara hundruð ferðamanna í norðurljósaferðir á hverjum degi. vísir/ernir
Aflýsa hefur þurft norðurljósaferðum fyrir nokkur hundruð manns á dag vegna óhagstæðs veðurs undanfarna daga, að því er Þórir Garðarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Iceland Excursions – Gray Line, greinir frá. Fyrirtækið selur sjálft norðurljósaferðir og þjónar auk þess mörgum innlendum ferðaskrifstofum.

Þórir segir viðskiptavinina hafa góðan skilning á því að veðrið á Íslandi geti breyst. „Við leggjum áherslu á að við séum að selja leitina að norðurljósum. Ekkert sé öruggt í þessum efnum, bæði vegna veðrabreytinga og vegna þess að virkni norðurljósanna er mjög mismunandi.“

Að sögn Þóris búa viðskiptavinir yfir meiri þekkingu á þessu en áður. „Aukinni þekkingu fylgir þolinmæði,“ tekur hann fram og bætir við að leiðsögumennirnir búi núna yfir gríðarlegri þekkingu á því sem er að gerast í himinhvolfunum og miðli henni til viðskiptavina.

Þórir Garðarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Iceland Excursions - Gray Line.
Fjöldi viðskiptavina sem Gray Line ekur í norðurljósaferðir er að jafnaði 200 til 300 á dag. „Þegar við fórum að selja leitina að norðurljósum fyrir 15 árum voru viðskiptavinirnir 20 til 30 á dag. Þá bárust fleiri athugasemdir vegna óánægju en nú. Menn höfðu minni þekkingu á því sem þeir voru að kaupa þá,“ segir Þórir.

Ef norðurljósaferð er aflýst fá viðskiptavinir endurgreitt. Sjáist ekki norðurljós í skoðunarferð geta viðskiptavinir farið í skoðunaferð án endurgjalds innan tveggja ára. „Við höfum farið með 1.600 manns á einu kvöldi þegar ekki hefur verið hægt að fara í nokkra daga eða þegar ekki hafa sést ljós,“ greinir Þórir frá.

Björn Reynisson, sölustjóri hjá Saga Travel, sem selur norðurljósaferðir bæði fyrir sunnan og norðan, segir skilyrði fyrir norðurljósaferðir hafa verið góð fyrir norðan að undanförnu. „Það hafa nokkrir tugir verið í þessum ferðum á hverjum degi.“

Björn greinir frá að nokkrir viðskipavinir hafi komið sérstaklega norður í norðurljósaferðir vegna slæmra veðurskilyrða fyrir sunnan.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×