Innlent

Hælisumsóknum fjölgar á Íslandi en fækkar í nágrannalöndunum

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
vísir/stefán
Met hefur verið slegið í fjölda hælisumsókna hér á landi en yfir áttatíu umsóknir hafa borist Útlendingastofnun í þessum mánuði.  Fjöldi umsókna í nágrannalöndunum er hins vegar á niðurleið.

Heildarfjöldi hælisumsókna það sem af er ári er þegar meiri en allt síðasta ár. Heildarfjöldi umsækjenda til dagsins í dag eru 470 manns en á sama tíma á síðasta ári höfðu um 160 umsóknir borist stofnuninni.

„Já við erum að upplifa ennþá mjög snarpa aukningu hjá okkur svona á haustmánuðum. Það sem af er þessum mánuði hafa okkur borist yfir áttatíu umsóknir sem þýðir það að þetta er met mánuður. Þetta er met mánuður hjá okkur og hann er rétt hálfnaður. Í fyrra voru umsóknir tæplega 400,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, staðgengill forstjóra Útlendingastofnunar.

Í nágrannalöndum okkar er staðan hins vegar önnur, en þar fer hælisumsóknum fækkandi. „Í kring um okkur er það að gerast að þessi tala fer lækkandi,“ segir Þorsteinn.

Á grundvelli samnings sem Útlendingastofnun og Alþjóðafólksflutningastofnunin hafa gert er áætlað að aðstoða 100 hælisleitendur við að flytja heim til sín á næstu átján mánuðum. Samningurinn tók gildi 1. ágúst en hann fjallar um stuðning við sjálfviljuga heimför. Aðstoðina fá þeir hælisleitendur sem uppfylla ekki skilyrði um veitingu hælis eða vilja draga umsókn sína til baka. En Af hverju talan hundrað ?

Það er tala sem við settum upp til að sjá hvernig þetta myndi ganga. Við höfum fengið töluvert mikla aukningu á umsóknum í ár og í fyrra og við teljum að þetta sé raunhæf tala,“ segir Þorsteinn.

Verkefnið mun kosta Útlendingastofnun tæpar 36 milljónir. Tobias Van Treeck, verkefnastjóri á skrifstofu Alþjóða fólksflutningastofnunarinnar í Helsinki, leggur áherslu á að aðstoðin sé einungis veitt þeim sem fari sjálfviljugir til síns heimalands.

Tobias útskýrir að stofnunin aðstoði fólk við að koma sér fyrir í heimalandinu. Á allra næstu dögum mun stofnunin taka við fyrstu umsóknunum um flutninga frá Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×