Fótbolti

Gunnleifur skaut þeim ungu ref fyrir rass

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Bose-mótið, árlegt æfingamót Pepsi-deildarliða, hefst annað kvöld með viðureign Fjölnis og Stjörnunnar.  Leikurinn hefst klukkan 20.00 og verður sýndur í beinni útsendingu hér á Vísi í gegnum Sport TV.

Mótið heldur svo áfram á fimmtudaginn þegar Víkingur mætir KR í Egilshöll klukkan 20.00.

Nokkrar af stjörnum Pepsi-deildarinnar voru fengnar í sláarkeppni til að hita upp fyrir mótið og þar stóð markvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson uppi sem sigurvegari.

Aron Sigurðarson, Fjölni, Arnþór Ingi Kristinsson, Víkingi, Jóhann Laxdal, Stjörnunni og Emil Pálsson, FH, reyndu allir að hitta sem oftast í slána í fimm tilraunum líkt og Gunnleifur sem þurfti aðeins að hitta tvisvar sinnum til að vinna.

Skemmtilegt myndband frá sláarkeppninni má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×