Lífið

Gunni Þórðar um hassið: Ætluðu ekki að láta neina löggu í Keflavík stoppa sig

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gunnar Þórðarson hefur samið fjölmörg dægurlög sem slegið hafa í gegn hjá landanum undanfarna áratugi.
Gunnar Þórðarson hefur samið fjölmörg dægurlög sem slegið hafa í gegn hjá landanum undanfarna áratugi. Vísir/GVA
Gunnar Þórðarson, einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, segir það hafa verið lítið mál að hætta hassreykingum og áfengisdrykkju. Eftir á að hyggja hafi lögin sem hann samdi á þeim tíma þegar hassreykingarnar voru í hámarki ekki hans bestu lög.

Gunnar ræddi opinskátt um vímuefnaneyslu sína og félaga hans í Hljómum í þættinum Mannamáli í vikunni. Hann segist fyrst hafa prófað að reykja hass árið 1967 þegar Hljómar voru að spila úti í Svíþjóð.

„Það var einhver rótari sem vildi endilega láta okkur prófa,“ segir Gunnar en strákarnir úr Keflavík voru þá staddir á tónlistarklúbbi. Hann segir þetta hafa verið part af tíðarandanum.

„Við lentum í því að það voru löggur í Keflavík sem voru bara á eftir okkur,“ segir Gunnar. Aftur á móti hefðu Bítlarnir prófað þetta og dásamað.

Umræðuna um vímuefnaneysluna má sjá hér að neðan.

Varð hundleiðinlegt svo hann hætti

„Við ætluðum ekki að láta neina löggu í Keflavík stoppa það. Við urðum að prófa þetta. Vita hvað þetta væri.“

Gunnar segist hafa notið reykinganna til að byrja með.

„Þú ferð í dálítið annan hugarheim,“ segir Gunnar og játar því að lagasmíðarnar hafi breyst. Ekki til hins betra.

„Það er eins og lögin sem ég samdi á þessum tíma séu ekki mín bestu lög,“ segir Gunnar og brosir. Það hafi verið eitthvað þunglyndi í þessu. Svo hafi hann bara hætt þessu.

„Mér fannst þetta orðið hundleiðinlegt,“ segir Gunnar. Hann hafi því bara hætt reykingunum. Það hafi verið lítið vandamál.

„Þetta var algjör óþarfi. Og að drekka líka. Ég hætti því líka.“

Þáttinn Mannamál á Hringbraut má sjá í heild sinni hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×