Lífið

Gunnar sofnaði á klósettinu eftir að hafa tekið á því í Vegas

Birgir Olgeirsson skrifar
Gunnar fékk sér lúr á klósettinu eftir að hafa skemmt sér í Las Vegas
Gunnar fékk sér lúr á klósettinu eftir að hafa skemmt sér í Las Vegas Vísir/Getty
„Maður leggur sig af og til,“ svaraði bardagakappinn Gunnar Nelson MMA-fréttum þegar hann var spurður hvort hann hefði fengið sér lúr á klósettinu eftir að hafa farið út á lífið eftir sigurinn á Brandon Thatch í Las Vegas síðastliðinn laugardag.

Gunnar hitti meðal annars leikarann Arnold Schwarzenegger á lífinu á Las Vegas eftir bardagann. Gunnar sagði við MMA-fréttir að hann og félagar hans hefðu „tekið aðeins á því“ um kvöldið. „Maður verður að gera það þegar maður er í Vegas,“ sagði Gunnar.

MMA

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×