Lífið

Gunnar mögulega í raunveruleikasjónvarp

Birgir Olgeirsson skrifar
Conor McGregor verður þjálfari í næstu seríu af The Ultimate Fighter.
Conor McGregor verður þjálfari í næstu seríu af The Ultimate Fighter. Vísir/Getty
Gunnar Nelson mun mögulega aðstoða félaga sinn Connor McGregor við tökur á raunveruleikaþættinum The Ultimate Fighter. Forseti UFC, Dana White, tilkynnti á sunnudag að McGregor verðir þjálfari þátttakenda í tuttugustu og annari seríu The Ultimate Fighter sem verður sýnd í haust þar sem keppendum frá Bandaríkjunum verður att gegn keppendum frá Evrópu.

Þegar Gunnar var spurður hvort hann muni aðstoða McGregor við þættina sagði hann það koma til greina. „Það getur vel verið að ég skjótist yfir til að vera með honum nokkra tökudaga,“ svaraði Gunnar.

MMA

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×