Innlent

Gunnar Bragi óttast mjög hægri stjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar

Birgir Olgeirsson skrifar
Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Vísir/Pjetur
Gunnari Braga Sveinssyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, finnst sorglegt að hér á landi sé að verða til hægri stjórn. Þetta sagði Gunnar Bragi í Víglínunni á Stöð 2 nú í hádeginu en þar var hann gestur Heimis Más Pétursson ásamt Birgittu Jónsdóttur, þingmanni Pírata, og Svandísi Svavarsdóttur, þingmanni Vinstri grænna.

Byrjað var að ræða stjórnarmyndunarviðræður og sagði Svandís Svavarsdóttir að á meðan þau sætu í sjónvarpssal væri líklegast verið að mynda ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar.

Gunnar Bragi sagði að það væri ekki gott fyrir Ísland að fá hægri stjórn, og átti þar við mögulega ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar.

Sjálfur hefði hann viljað sjá stjórn sem væri mynduð frá hægri til vinstri en nú lægi fyrir hægri stjórn sem hann óttast mjög.

Heimir Már spurði þá Gunnar Braga hvort flokkur hans, Framsóknarflokkurinn, hefði ekki verið í hægri stjórn með Sjálfstæðisflokknum sem nú væri að fara frá, en Gunnar vildi ekki meina það.

Sagði hann Framsóknarflokkinn hafa reynt að halda aftur af frjálshyggjunni sem Sjálfstæðisflokkurinn væri með í sínu farteski. Hann sagði ljóst að stjórn Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar væri hægri stjórn og bætti við að Viðreisn væri hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn í sinni afstöðu.

Svandís Svavarsdóttir var spurð út í viðræður Vinstri grænna og Framsóknarflokksins sem sumir lásu sem skilaboð um samstarfsvilja með Sjálfstæðisflokknum. Svandís sagði orðum aukið að Vinstri græn hafi bankað á dyrnar hjá Sjálfstæðisflokknum.

Hún sagði að það hefði verið eðlilegt að heyra í Framsóknarflokknum og athuga samstarfsfleti, hvort sem það væri í ríkisstjórn eða utan hennar. Þetta hefði verið gert á sama tíma og lítill taktur virtist vera í viðræðum Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar þar var jafnvel einungis fundað í klukkutíma á dag.

Svandís sagði þessar stjórnarmyndunarviðræður Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar minna sig á vinnubrögð úr atvinnulífinu þar sem forstjórar talast við á lokuðum fundum og kynna svo starfsfólki seinna meir niðurstöðuna. Hún sagðist finna til með almennum þingmönnum í þessum flokkum að vera ekki betur upplýstir um stöðu mála.

Sjáðu Víglínuna í heild sinni hér fyrir neðan:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×