Tónlist

Gullplata til Kaleo sem heldur áfram að slá í gegn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Söngvarinn Jökull Júlíusson eða JJ Julius Son eins og hann er þekktur í Bandaríkjunum.
Söngvarinn Jökull Júlíusson eða JJ Julius Son eins og hann er þekktur í Bandaríkjunum. Kaleo
Íslenska hljómsveitin Kaleo hefur selt yfir 500 þúsund eintök af laginu Way Down We Go.  Fékk sveitin gullplötu af því tilefni á dögunm. Aeronaut Studeios sá um upptöku lagsins en í forsvari þar er Arnar Guðjónsson, af mörgum þekktur sem söngvari Leaves.

Um er að ræða fyrstu gullplötu sveitarinnar í Bandaríkjunum en Kaleo fékk gullplötu í Kanada síðastliðið sumar fyrir plötuna A/B. Óhætt er að segja að sveitin sé að slá í gegn vestan hafs en Way Down We Go er meðal annars spilað í stiklu fyrir síðustu Wolverine myndina, Logan.

Að neðan má sjá liðsmenn Kaleo með gullplötuna í Kanada í fyrra.


Í desember var Kaleo valin besta nýja rokkhljómsveitin á árslista Billoard en Way Down We Go var þriðja vinsælasta lag ársins á listanum „Alternative Songs“ hjá Billboard.

Í umfjöllun Billboard kom fram að enginn nýliði hefði staðið sig jafnvel frá því að Gotye kom laginu Sombody That I Used To Know efst á sama lista árið 2012.

Kaleo hefur komið fram í öllum helstu spjallþáttum Bandaríkjanna undanfarin ár og  slógu í gegn hjá Jimmy Kimmel í september þar sem leikarinn og Óskarverðlaunahafinn Tom Hanks var á meðal gesta. Flutti sveitin Way Down We Go og No Good við það tilefni.

Að neðan má sjá Kaleo flytja No Good hjá Jimmy Kimmel.


Þá var hljómsveitin hlutskörp á Hlustendaverðlaununum á dögunum þegar Kaleo var valinn flytjandi ársins og myndbandið við Save Yourself var valið myndband ársins.

Myndbandið má sjá hér að neðan.

Kaleo er á leið í tónleikaferðalag en ferðalagið hefst í Columbus Ohio þann 23. febrúar. Á flestum tónleikunum spilar Kaleo með bandarísku sveitinni The Lumineers.

Ho Hey er líklega frægasta lag The Lumineers sem er frá Denver í Colorado ríki. 

Kaleo verður á ferð og flugi um Texas, Flórída, Georgíu og fleiri ríki Bandaríkjanna fram í miðjan mars þegar sveitin heldur til Kanada. Þar heldur sveitin ferna tónleika áður en sveitin heldur áfram ferð sinni um Bandaríkin.

Sveitin verður fyrirferðamikil á tónlistarhátíðum á árinu en Kaleo spilar meðal annars á Coachella í Kaliforníu í apríl, Rock Werchter í Belgíu júní og Lollapalooza París í frönsku höfuðborginni í júlí sem markar endinn á sex mánaða ferðalagi strákanna, að minnsta kosti eins og staðan er núna. 


Tengdar fréttir

Kaleo með lag í nýjustu stiklu Wolverine

Logan er nýjasta myndin um teiknimyndasögupersónuna Wolverine en Hugh Jackman, Boyd Holbrook og Doris Morgado fara með aðalhlutverkin í kvikmyndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×