Matur

Guinness-kaka með viskíkremi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Guinness-súkkulaðikaka

 
Kakan:

250 g hveiti

120 g kakó

2 tsk matarsódi

220 g sykur

100 g ljós púðursykur

1/2 tsk salt

480 ml Guinness bjór

120 ml olía

1 tsk vanilludropar



Krem:

250 g mjúkt smjör

1 tsk vanilludropar

5 bollar flórsykur

2-3 msk viskí

1/2 tsk kakó

1/2 tsk sterkt kaffi



Hitið ofninn í 170°C. Smyrjið tvö hringlaga form. Blandið saman hveiti, kakó, matarsóda, salti, sykri og púðursykri. Búið til holu í miðjunni og hellið þar bjór, olíu og vanilludropum. Hrærið þar til blandan er kekkjalaus. Hellið í formin og bakið í 25 til 30 mínútur.

Leyfið kökunum að kólna og gerið svo kremið. Hrærið smjör og vanilludropa vel saman. Bætið flórsykrinum varlega saman við. Blandið því næst viskí, kakó og kaffi saman við og þá ætti kremið að vera svipað á bragðið og Baileys. Setjið kremið á annan botninn og setjið svo hinn botninn ofan á. Setjið krem ofan á kökuna og njótið.

Fengið hér.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×