Guðríður fagnar 109 ára afmæli sínu í dag Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. maí 2015 10:01 Guðríður á 105 ára afmælisdeginum sínum fyrir fjórum árum.
Guðríður Guðbrandsdóttir, elsti núlifandi Íslendingurinn, fagnar 109 ára afmæli sínu í dag laugardaginn 23. maí. Aðeins þrjár aðrar konur hafa náð 109 ára aldri. Guðríður hefur verið elsti Íslendingurinn frá því í ágúst 2011 þegar Torfhildur Torfadóttir féll frá. Guðríður var ein af ellefu systkinum, sú sjötta í röðinni, fædd í Dalasýslunni og ólu hún og eiginmaður hennar upp þrjú börn og á hún á annan tug barnabarna og enn fleiri barnabarnabörn, já og einnig á annan tug barnabarnabarnabarna. Guðríður flutti þrítug til Reykjavíkur en bjó áður um tíma í Búðardal með eiginmanni sínum sem var skósmiður. Púlsinn var tekinn á Guðríði á afmæli hennar í fyrra en þá sagði hún bestu breytinguna á sínum tíma hafa verið þá að fá rafmagn. Guðríður fæddist árið1906 á Heimastjórnartímanum þegar ýmsar framfarir urðu.Guðríður á sínum yngri árum.Til dæmis sendi Hannes Hafstein ráðherra þá fyrsta símskeytið héðan til konungs. Þegar Guðríður var átta ára braust fyrri heimstyrjöldin út. Hún man eftir erfiðleikum og að vegna stríðsins áttu hún ekki neina skó þegar hún fermdist eða almennileg föt. Hún rifjar líka upp að þegar hún fékk kosningarétt gat hún samt ekki kosið. Þegar hún mætti í fyrsta sinn á kjörstað hafði gleymst að setja hana á kjörskrá og ekkert var úr því bætt. Í viðtali í fréttatíma Stöðvar 2 fyrir rúmu ári síðan sagði Guðríður best að vera með jákvæðni að leiðarljósi, hvorki drekka áfengi né reykja eða gera nokkuð annað sem væri vont fyrir mann. Hún hafi einu sinni ákveðið að byrja að reykja en einhvern veginn hætt við. Guðríður býr í þjónustuíbúð í Furugerði og hefur gert undanfarna fjóra áratugi.Hér að neðan má sjá þegar Linda Blöndal, fréttakona Stöðvar 2, heilsaði upp á Guðríði í tilefni afmælis hennar í fyrra.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Sjá meira