Lífið

Guðni Th. mætir í FM95BLÖ

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðni Th. verður í FM95BLÖ.
Guðni Th. verður í FM95BLÖ. vísir
Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur og forsetaframbjóðandi verður gestur í þætti FM95BLÖ á FM957 í dag.

Þátturinn hefur verið á dagskrá á stöðinni undanfarin ár og eru það þeir Auðunn Blöndal, Egill Einarsson og Steindi Jr. sem eru umsjónarmenn þáttarins.

Egill Einarsson ætlar að taka Guðna í leik sem hann kallar King of president sem er nokkuð viðeigandi þar sem Guðni sækist eftir því að verða forseti Íslands. Svo mun hann spreyta sig í leiknum giftast, sofa hjá eða senda út í sveit sem er alltaf vinsæll dagskráliður.

Guðni mætir í þáttinn um klukkan 16:30 en þátturinn hefst klukkan fjögur og stendur yfir til sex.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×