Fótbolti

Guardiola þakkar Neuer eftir 4-1 sigur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guardiola bregður á leik.
Guardiola bregður á leik. Vísir/Getty
Pep Guardiola, stjóri Bayern Munchen, var ekki fullkomnlega ánægður með leik sinna manna í gærkvöldi. Bayern vann FC Köln með fjórum mörkum gegn einu, en Guardiola segir að sínir menn geta þakkað Manuel Neuer fyrir stigin þrjú.

„Ég er ánægður. Við unnum liðið sem er það næst besta á útivelli í deildinni og skoruðum fjögur mörk, sem er mjög erfitt gegn þessum andstæðingi,” sagði Guardiola við fjölmiðla.

„Við byrjuðum vel, en misstum stjórn á leiknum um tíma. Þegar Arjen kom okkur í 3-1 varð þetta að allt öðrum leik, en við unnum í dag vegna þess að Manuel Neuer átti tvær magnaðar markvörslur.”

Bayern er á hraðri leið í átt að sínum 25. Þýskalandstitli, en liðið er með gott forskot á Wolfsburg eftir sigurinn í gær. LIðið stendur einnig í ströngu í Meistaradeildinni, en Bayern gerði 0-0 jafntefli við Shaktar Donetsk í fyrri leik liðanna sem fram fór í Úkraínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×