Innlent

Grunnskólakennarar skrifa undir nýjan kjarasamning

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Vísir/VIlhelm
Félag grunnskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu síðdegis í gær undir nýjan kjarasamning. Samningurinn byggir á fyrri samningi sem félagsmenn FG felldu í atkvæðagreiðslu í byrjun júní.

Í tilkynningu frá félaginu segir að það sé mat samninganefndar og svæðaformanna að með hinum nýja kjarasamningi séu helstu vankantar fyrri samnings lagaðir. Auk breytinga á texta kjarasamnings séu ákveðin atriði skýrð og við bætist nokkur ný efnisatriði.

Samningurinn verður kynntur fyrir félagsmönnum á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×