Innlent

Grunaður um kynferðisbrot gegn þremur konum: Taldi að um misskilning væri að ræða

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms í málinu.
Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms í málinu. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur staðfest fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir spænskum karlmanni sem grunaður er um nauðgað tveimur konum og káfað á þriðju konunni eftir árshátíð á hóteli á Suðurlandi þann 13. febrúar síðastliðinn.

Konurnar þrjár voru sofandi hver í sínu hótelherbergi þegar hin ætluðu brot voru framin. Konurnar sem maðurinn er sakaður um að hafa nauðgað segjast báðar hafa vaknað við að maðurinn væri að hafa við þær samfarir. Tókst þeim báðum að ýta manninum af sér.

Í greinargerð lögreglunnar á Suðurlandi sem lögð var fyrir dóm kemur fram að konurnar hafi báðar verið í miklu uppnámi þegar lögreglu bar að garði og þurfti önnur þeirra að fá róandi sprautu hjá sjúkraliði á vettvangi.

Önnur konan gat bent á manninn á vettvangi og var hann handtekinn á staðnum. Við líkamsleit á manninum fundust svartar kvenmannsnærbuxur í vinstri brjóstvasa hans og leikur grunur á um að annar brotaþolanna eigi umræddar nærbuxur.

Framburður mannsins talinn ótrúverðugur

Við yfirheyrslur kannaðist maðurinn við að hafa farið inn á bæði herbergin sem um ræðir og haft samræði við konurnar sem þar voru. Taldi hann að samræðið væri með samþykki kvennanna en þegar þær hafi sagt honum að hætta hafi hann strax hætt. Hann hafi neitað að um nauðgun hafi verið að ræða og að líklega væri um misskilning að ræða.

Nokkrum dögum síðar hafði þriðja konan samband við lögreglu kvaðst vilja kæra kærða fyrir kynferðisbrot sem hafi átt sér stað á herbergi á hótelinu. Greindi hún frá því að hún hafi verið sofandi í rúmi í umræddu herbergi, undir sæng, þegar hún hafi vaknað upp við það að einhver hafi verið að káfa á innanverðu læri hennar og rassi, innanklæða, undir sænginni

Í greinargerð lögreglu segir að lögregla telji að framburður mannins um að kynferðismökin hafi verið með samþykki kvennana og að hann hafi hætt eftir að þær báðu hann um að hætta sé afar ótrúverðugur.

Staðfesti Hæstiréttur gæsluvarðhaldsúrskurðs héraðsdóms og mun maðurinn sitja í gæsluvarðhaldi til 17. mars næstkomandi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×