Grunaður um að hafa reynt að nauðga tveimur stúlkum í miðbæ Reykjavíkur Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. desember 2015 09:43 Maðurinn verður í gæsluvarðhaldi til 19. janúar næstkomandi. vísir/heiða helgadóttir
Hæstiréttur úrskurðaði í gær karlmann í gæsluvarðhald til 19. janúar næstkomandi vegna tveggja tilraun til nauðgana aðfaranótt 13. desember síðastliðinn. Maðurinn er úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna en hann er grunaður um að hafa ráðist fyrirvaralaust með ofbeldi á tvær konur í miðbæ Reykjavíkur. Í dómi héraðsdóms eru árásirnar sagðar hafa verið „sérlega ófyrirleitnar, fólskulegar og hættulegar atlögur.“ Því þyki það ekki forsvaranlegt að maðurinn gangi laus þar sem hann liggur undir sterkum grun um mjög alvarleg brot. Maðurinn neitar hins vegar sök.Reif buxur stúlkunnar og reyndi að hneppa frá sínum buxum Fyrri árásin átti sér stað á Tjarnargötu í Reykjavík en tilkynningu um hana barst lögreglu klukkan 03.05 um nóttina. Á vettvangi hitti lögreglan fyrir stúlku sem var í miklu uppnámi. Hún sat í snjónum í rifnum buxum og grét. Hún lýsti því að hún hafi verið að ganga heim úr bænum þegar hún tók eftir manni sem gekk fyrir aftan hana á Tjarnargötunni. Hann gekk mjög nálægt henni, hún hafi orðið hrædd og vikið sér til hliðar svo maðurinn gæti gengið framhjá henni. Maðurinn hafi hins vegar stoppað ofar í götunni en stúlkan hélt för sinni áfram. Þegar hún gekk framhjá manninum hafi hann svo gripið í hana, reynt að taka af henni símann og kallað hana „bitch.“ Svo hafi maðurinn gripið um munn stúlkunnar, ýtt henni að húsinu, rifið buxurnar hennar og reyndi að hneppa frá buxunum sínum. Stúlkan hafi þá öskrað eins hátt og hún gat en hún sagði lögreglu að hún hafi verið þess fullviss að maðurinn ætlaði að nauðga henni. Hann hafi verið harkalegur við hana en hún öskraði meira og þá kom fólk að þeim. Við það hafi maðurinn farið.Mynd sem lögreglan óskaði eftir að birt yrði í fjölmiðlum af meintum árásarmanni.mynd/lrhÝtti stúlkunni utan í bíl og reyndi að setjast klofvega yfir hana Aðeins fimm mínútum eftir að tilkynning um þessa árás barst lögreglu kom tilkynning um aðra árás á stúlku í Þingholtsstræti. Þar hafi lögreglan hitt stúlkuna sem var grátandi og í miklu uppnámi. Hún lýsti því að hafa verið ein á gangi upp Bankastrætið þegar maður hafi komið aftan að henni og lagt hendi yfir axlir hennar. Maðurinn hafi svo gripið fastar og fastar utan um hana og hún reynt að losa sig en hann hafi þá gripið um munn hennar og gengið ákveðið með hana inn Þingholtsstrætið. Þau hafi ekki verið komin langt inn götuna þegar maðurinn hafi svo kastað henni utan í bíl sem lagt var í Þingholtsstræti og reynt að setjast klofvega yfir hana. Kvaðst stúlkan að sér hefði liðið allan tímann eins og hann ætlaði að nauðga henni en síðan hafi líklega einhver komið að því allt í einu hafi maðurinn hlaupið í burtu.Önnur árásin öll til á upptöku Á meðal gagna í málinu eru upptökur úr eftirlitsmyndavélum miðbæjarins þar sem maðurinn sést á gangi í Tjarnargötu og þá er seinni árásin öll til á upptöku. Myndir úr myndavélunum voru birtar í fjölmiðlum þann 16. desember síðastliðinn að beiðni lögreglu. Fjöldi ábendinga hafi borist lögreglu í kjölfarið og þá hafði maðurinn sjálfur haft samband við lögreglu og kvaðst þekkja sig á myndunum. Að mati lögreglu er ljóst af upptökum úr eftirlitsmyndavélum, lýsingum vitna og stúlknanna á útliti og klæðaburði mannsins að um sama árásarmann er að ræða í báðum tilfellum. Eins og áður segir er hann nú í gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna til 19. janúar en þau brot sem hann er grunaður um geta varðað allt að 16 ára fangelsi.
Tengdar fréttir Löggan leitar að þessum manni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir því að ná tali af manni vegna máls sem er til rannsóknar. Myndina má sjá hér að ofan. 16. desember 2015 15:34 Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Fréttir Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum Sjá meira
Löggan leitar að þessum manni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir því að ná tali af manni vegna máls sem er til rannsóknar. Myndina má sjá hér að ofan. 16. desember 2015 15:34