Lífið

Greta með fjórtánda vinsælasta lagið hjá ofuraðdáendum Eurovision

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Greta flytur lagið "Hear them calling“ í Stokkhólmi 10. maí næstkomandi.
Greta flytur lagið "Hear them calling“ í Stokkhólmi 10. maí næstkomandi. Vísir
Heitustu aðdáendur Eurovision um Evrópu, og nú einnig Ástralíu, hafa kveðið upp sinn dóm í allsherjarkosningu OGAE, sem eru regnhlífasamtök aðdáendaklúbba keppninnar í hverju þátttökulandi fyrir sig. Greta Salóme Stefánsdóttir, flytjandi íslenska lagsins „Hear them calling“, hafnar í 14. sæti í þeirra kosningu.

Aðdáendaklúbbur Svía var sá síðasti til þess að greiða atkvæði. Hér má sjá niðurstöður þeirra en Svíar gáfu Gretu þrjú stig. 

Aðdáendasamtökin spá Frakklandi sigri en Frakkarnir fá 425 stig alls í kosningunni. Rússland fylgir fast á hæla Frakklands með 392 stig. Þetta eru sömu lönd og veðbankar telja að berjast muni um titilinn.

Það er hinn sykursæti Amir sem syngur lag Frakklands en lagið er flutt bæði á frönsku og ensku. Það fjallar um að vera týndur en að fá styrk frá sérstökum einstaklingi. Amir hefur tekið þátt í hæfileikaþáttum á borð við, A Star is Born í Ísrael og The Voice í Frakklandi. Hér að neðan má hlusta á lag Frakka í ár. 

Rússar tróna á toppi veðbanka með lagið You are the only one í flutningi Sergey Lazarev. Lazarev er söngvari ársins í Rússlandi en þar í landi nýtur hann mikilla vinsælda sem söngvari og þáttastjórnandi. Hlýða má á lag Rússa hér að neðan.

Ástralía lendir í þriðja sæti í aðdáendakosningunni með 280 stig, Búlgaría í því fjórða með 175 stig og Ítalía í fimmta sæti með 170 stig. 

Íslenska lagið fékk 44 stig í heildina en það voru aðdáendur í Andorra, Belgíu, Tékklandi, Danmörku, Írlandi, Lúxemborg, Hollandi, Spáni, Sviss, Bretlandi og Rússlandi sem gáfu Íslandi stig. Tékkar virðast vera sérstaklegar hrifnir af framlagi Íslands en tékkneskir aðdáendur gáfu „Hear them calling“ heil tíu stig. Aðeins er rétt rúm vika í að Greta stigi á svið í Stokkhólmi þar sem keppnin fer fram en hún er sextánda á svið í fyrri undanúrslitariðli. 

Hér má sjá niðurstöðurnar í heild sinni

Veðbankar eru ekki örlítið neikvæðari í garð íslenska framlagsins og aðdáendahóparnir en samkvæmt vefsíðunni Oddschecker, sem tekur saman líkur frá veðbönkum víðsvegar um internetið, mun Greta hafna í 19 eða 20. sæti.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×