Lífið

Greta á rauða dreglinum: „Ekki annað hægt en að líða eins rokkstjörnu hér“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Greta ljómaði á rauða dreglinum.
Greta ljómaði á rauða dreglinum. vísir
Nú styttist óðfluga í Eurovision-keppnina sem í ár er haldin í Stokkhólmi í Svíþjóð. Fyrra undanúrslitakvöldið verður annað kvöld og ræðst það hvort fulltrúi Íslendinga, Greta Salóme, komist áfram í úrslitin á laugardag.

Greta Salóme flytur lagið Hear Them Calling sem framlag okkar Íslendinga í Eurovision þetta árið.

Greta Salóme og Eurovision-teymi okkar Íslendinga hefur verið í Svíþjóð undanfarna daga og hefur verið mikið að gera hjá liðinu en í gær fór fram svokölluð opnunarhátíð fyrir keppnina.

„Fólk er að taka rosalega vel í mig og það er alveg magnað að labba hérna niður og það eru allir að taka vel í boðskap lagsins,“ sagði Greta á rauða dreglinum í Stokkhólmi í gær.

„Núna þegar sviðsgrafíkin og allt er komið saman þá er eins og allt sé að smella. Ég held að það sé ekki annað hægt en að líða eins rokkstjörnu hér á rauða dreglinum. Það er svo mikið af flottu fólki hérna og rosalega góð orka.“

Greta stígur á svið í Globen annað kvöld og er hún 16. í röðinni.



Einnig var rætt við nokkrar erlendar stjörnur á rauða dreglinum í gær og má sjá viðtal við þær hér að neðan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×