Lífið

Grammy-verðlaunin í beinni: Hverjir verða sigurvegarar kvöldsins

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Beyoncé, Justin Bieber og Adéle eru öll tilnefnd.
Beyoncé, Justin Bieber og Adéle eru öll tilnefnd. Vísir
Grammy-verðlaunahátíðin mun fara fram í nótt í Los Angeles og mun hefjast klukkan eitt að íslenskum tíma en um er að ræða stærstu tónlistarverðlaunarhátíð í heimi og ljóst er að mikið verður um dýrðir.

Allar helstu stjörnurnar munu láta sjá sig á hátíðinni, en að þessu sinni mun spjallþáttastjórnandinn James Corden kynna hátíðina í fyrsta skipti en hann hefur slegið í gegn að undanförnu.

Spennandi verður að sjá hvaða tónlistarmenn munu hreppa verðlaun en meðal annars verða veitt verðlaun fyrir plötu ársins, smáskífu ársins og lag ársins.

Hér að neðan má fylgjast með umræðum og myndum af hátíðinni:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×