Innlent

Græn orka sækir á í ESB ríkjum

Svavar Hávarðsson skrifar
Vindorka er helsta uppspretta grænnar orku víða í Evrópu.
Vindorka er helsta uppspretta grænnar orku víða í Evrópu. nordicphotos/gettyimages
Hlutur endurnýjanlegra orkugjafa í orkunotkun aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB) var að meðaltali 15,3% árið 2014, samkvæmt nýbirtum tölum frá framkvæmdastjórn ESB. Til samanburðar má geta þess að á Íslandi er þetta hlutfall 76%.

Á heimasíðu Samorku segir að flest aðildarríkin virðast vera á góðri leið með að ná markmiði ESB um 20% meðaltal árið 2020. Hlutfallið er langhæst í Svíþjóð, 51,1%. Þar á eftir koma Lettland með 35,8% og Finnland með 34,5%.

Lægst er hlutfallið á Möltu, 2,7%, en í Lúxemborg, Bretlandi og Hollandi er hlutfallið einnig undir 5%.

Á Íslandi eru 99,9% allrar raforku framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum sem og um 99% allrar orku til húshitunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×