Fótbolti

Götze gæti hugsað sér að leika erlendis

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Mario Götze.
Mario Götze. Vísir/Getty
Mario Götze, leikmaður Bayern Munchen og þýska landsliðsins, útilokar ekki að hann muni einn daginn leika í nýju landi en hann gekk til liðs við Bayern frá Dortmund fyrir ári síðan.

Götze sem er aðeins 22 árs gamall skoraði sigurmark Þýskalands í úrslitaleik Heimsmeistaramótsins í sumar en hann hefur auk þess þrisvar náð að hampa þýska meistaratitlinum og tvisvar þýska bikarnum.

Undanfarin ár hafa sífellt fleiri þýskir leikmenn reynt fyrir sér erlendis og útilokar Götze ekki að hann láti á það reyna.

„Mér líður vel hjá Bayern Munchen, það er gríðarleg samkeppni í hópnum sem gerir það að verkum að allir stefna hátt. Ég ætla hinsvegar ekki að útiloka að ég muni leika erlendis, ég á kannski 14 ár eftir af ferlinum og það væri gaman að prófa eitthvað nýtt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×