Innlent

Götum lokað á Akureyri vegna vopnamáls

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Lögreglan á Akureyri var kölluð í morgun vegna heimilisofbeldis.
Lögreglan á Akureyri var kölluð í morgun vegna heimilisofbeldis. Mynd/Pjetur
Laust eftir klukkan hálf sex í morgun var lögreglan á Norðurlandi eystra kölluð til vegna tilkynningar um heimilisofbeldi í húsi á Akureyri.

Sá sem tilkynnti um málið skýrði frá því að meintur gerandi hafi hótað að beita skotvopni. Gerðar voru viðeigandi ráðstafanir og sérsveit Ríkislögreglustjóra kölluð út. Lögreglan lokaði einnig nærliggjandi götum og lögreglumenn á vakt vopnuðust.

Skömmu eftir þetta kom meintur gerandi vopnlaus út úr íbúðinni og var hann þá handtekinn. Við leit í íbúðinni fundust tvær haglabyssur og nokkurt magn skotfæra. Viðkomandi sem var undir áhrifum áfengis var vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður seinna í dag.

Rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri rannsakar nú málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×