Glamour

Google spáir fyrir um hausttískuna

Ritstjórn skrifar
Hausttískan er eitthvað sem allir elska að pæla í, Google meðtalin.
Hausttískan er eitthvað sem allir elska að pæla í, Google meðtalin. Mynd/Getty
Sú tækni sem stendur okkur til boða í dag gefur fólki endalausa möguleika. Meðal þess sem hægt er að nýta sér í dag er google til þess að lesa út hvaða trend verða í tísku í haust. Þau hjá Google hafa rýnt í tölurnar og gefið út hvaða trend þau telji verða vinsælust á næstu mánuðum út frá því hvað fólk er að googla og skoða á netinu. 

Þetta er í annað sinn sem að Google gefur frá sér svona skýrslu, en hana má nálgast í heild sinni hér.

Þau trend sem haldast stöðug:

  • Rifnar gallabuxur.
  • "Biker" buxur.
Þau trend sem eru að rísa í vinsældum:

  • Kimono kjólar
  • Samfestingar
  • Skyrtukjólar
  • Hippa kjólar








Skyrtukjólar eru líklegir til vinsælda í haust.
Þau trend sem hafa verið að aukast í vinsældum seinustu mánuði (munu líklega ekki endast mikið lengur):

  • Axlalausir bolir
  • "Bodysuits"
  • Bolir með reimum
 

Samfestingar hafa verið vinsælir í sumar og munu líklegast halda áfram að vera það í haust.
Þau trend sem eru á stöðugri niðurleið:

  • Buxur með lafandi klofi
  • Gegnsæ föt
  • Sýruþvegnar gallabuxur
Þau trend sem búast má við að eigi eftir að detta úr tísku:

  • Rúskins pils
  • "Waist Trainers"
  • Vafin pils
  • Kjólabolir
Það gæti verið gott að hafa þennan lista til hliðsjónar þegar verslað er inn fyrir haustið.

Waist trainers eru afarumdeildir og sem betur fer á leiðinni úr tísku.





×