Lífið

Góðfúslegt grín endar illa

Lily Allen gerir það sem henni dettur í hug.
Lily Allen gerir það sem henni dettur í hug. vísir/getty
Lögregluyfirvöld í Ástralíu rannsaka nú ansi áhugavert mál en það virðist sem uppátæki Lily Allen á áströlskum flugvelli hafi komið einum lögreglumanni í klandur.

Söngkonan, sem hefur verið í tónleikaferðalagi í Ástralíu undanfarna daga, lenti Gold Coast flugvellinum um hádegisbil í gær en hún er vön því að fá lögreglufylgd í gegnum flugvelli.

Söngkonan bað einn lögreglumanninn um að þykjast handtaka sig svo hún gæti tekið mynd af því og birt á samfélagsmiðlinum Twitter. Þetta gerir lögreglumaðurinn góðfúslega og Allen birtir myndina.

Myndin olli töluverðu fjaðrafoki og var fjarlægð stuttu síðar en núna er verið að rannsaka málið þar sem slíkt grín af hálfu lögreglumannsins er að sjálfsögðu ólöglegt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×