Fótbolti

Glódís Perla lagði upp sigurmarkið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir.
Glódís Perla Viggósdóttir. Mynd/KSÍ
Íslenski landsliðsmiðvörðurinn Glódís Perla Viggósdóttir átti mikinn þátt í sigri Eskilstuna United í Íslendingaslag í sænsku kvennadeildinni í kvöld.

Eskilstuna United vann þarna 1-0 heimasigur á Kristianstads DFF en þetta var þriðji deildarsigur liðsins í röð.

Glódís Perla spilaði í miðri vörn Eskilstuna United í leiknum sem hélt marki sínu hreinu og íslenska landsliðskonan lagði síðan upp eina mark leiksins á 13. mínútu.

Sif Atladóttir var í byrjunarliði Elísabetar Gunnarsdóttur hjá Kristianstads DFF og spilaði allan leikinn.

Þetta lítur ekki  nógu vel út fyrir Elísabetu og stelpurnar hennar í Kristianstad liðinu enda hefur liðið aðeins náð í tvö stig og situr í neðsta sæti deildarinnar.

Eskilstuna United er aftur á móti í 3. sætinu nú sex stigum á eftir tveimur efstu liðunum sem eru Rosengård og Linköping.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×