Lífið

Glee-stjarna í það heilaga

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Glee-stjarnan Naya Rivera gekk að eiga leikarann Ryan Dorsey í Cabo San Lucas í Mexíkó þann 19. júlí síðastliðinn.

Naya og Ryan deila fallegum brúðkaupsmyndum með tímaritinu People.

„Okkur finnst það blessun að vera sameinuð sem hjón. Sérstaki dagurinn okkar voru okkar örlög og allt sem við hefðum getað beðið um,“ segir parið í samtali við People. 

Naya og Ryan kynntust fyrir fjórum árum og urðu góðir vinir. Rómantíkin blómstraði síðan stuttu eftir að Naya og rapparinn Big Seanslitu trúlofun sinni í apríl á þessu ári.

Naya klæddist brúðarkjól frá Monique Lhuillier á stóra deginum en Ryan var í jakkafötum frá Dolce & Gabbana. Hringarnir sem parið skiptist á voru frá Neil Lane.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×