Lífið

Glæsileg íbúð með vörulyftu beint inn í stofu – Myndir

Samúel Karl Ólason skrifar
Einstök íbúð við Hverfisgötu er til sölu hjá Fasteignasölunni Lind. Hún er 223,7 fermetrar og í henni eru þrjú svefnherbergi. Íbúðin er heil hæð og þar er mikil lofthæð og gluggar eru stórir.

Hæðin er að mestu endurnýjuð, raflagnir, dren, skólp, þak að mestu, hús að utan gólfefni, innréttingar ofl. Gegnheilt plankaparket á gólfi.

Haldið verður opið hús á morgun frá klukkan 16:00 til 16:30.

Fleiri myndir og frekari upplýsingar um íbúðina má finna hér á Fasteignavef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×