Bíó og sjónvarp

Glæpamaður í hefndarhug

Sara McMahon skrifar
Kristín Andrea Þórðardóttir, framleiðandi, ásamt Ólafi Jóhannessyni, leikstjóra myndarinnar.
Kristín Andrea Þórðardóttir, framleiðandi, ásamt Ólafi Jóhannessyni, leikstjóra myndarinnar. Fréttablaðið/Stefán
„Við byrjuðum í tökum í síðustu viku og þær hafa gengið vonum framar,“ segir Kristín Andrea Þórðardóttir, framleiðandi kvikmyndarinnar Borgríki 2, Blóð hraustra manna. Myndin er sjálfstætt framhald Borgríkis sem kom út árið 2011.

Ólafur Jóhannesson leikstýrir myndinni og með aðalhlutverk fara Darri Ingólfsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Zlatko Krickic, Sigurður Sigurjónsson og Hilmir Snær Guðnason. Söguþráður Borgríkis 2 gerist tveimur árum eftir atburði fyrri myndarinnar.

„Gunnar, sem leikinn er af Ingvari, hefur misst veldi sitt til Sergej, sem leikinn er af Zlatko, og er nú í hefndarhug. Hannes, ungur og upprennandi lögreglumaður sem Darri Ingólfsson leikur, fær nýja stöðu í innra eftirliti lögreglunnar og ætlar að taka til hendinni. Hann fær ábendingu um spilltan yfirmann og ákveður að fylgjast með honum til að komast einnig höndum yfir Sergej og gengi hans,“ segir Kristín þegar hún er spurð nánar út í söguþráð myndarinnar.

Borgríki var kjörin besta innlenda mynd ársins 2011 af álitsgjöfum Fréttablaðsins. Hún var jafnframt fjórða aðsóknarmesta mynd þess árs, með rúmlega sextán þúsund áhorfendur.



Hér má
fylgjast með framgangi myndarinnar á Facebook.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×