Lífið

Gísli Pálmi með nýtt lag

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Sjálfur hefur Gísli Pálmi sagt að hann sé að reyna að hrista upp í þröngsýnu sveitaliði.
Sjálfur hefur Gísli Pálmi sagt að hann sé að reyna að hrista upp í þröngsýnu sveitaliði. Vísir/Anton
Pródúsentinn og rapparinn Gísli Pálmi hefur gefið út nýtt lag. Lagið heitir Ískaldur og er glóðvolgt úr verksmiðjunni.

Lagið er áþekkt mörgu því sem hefur áður komið frá kappanum. Sterkur bassi, sem oft hefur einkennt lög Gísla, fer ekki framhjá nokkrum manni.

Sjálfur hefur Gísli sagt að hann sé að reyna að hrista upp í þröngsýnu sveitaliði.

Lög Gísla hafa ávallt komið út á Youtube og enn hefur ekki borist plata frá kappanum. Spurning er hvort eða hvenær von sé á henni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×