Fótbolti

Giroud skaut Arsenal áfram í Meistaradeildinni | Sjáið þrennu Frakkans í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Olivier Giroud fagnar einu af mörkum sínum.
Olivier Giroud fagnar einu af mörkum sínum. Vísir/EPA
Franski framherjinn Olivier Giroud sá um að skjóta Arsenal áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar í kvöld en hann skoraði þrennu í 3-0 sigri Arsenal á útivelli á móti gríska liðinu Olympiakos.

Olympiakos nægði jafntefli í leiknum og mátti líka tapa 1-0 og 2-1. Arsenal-menn sýndu styrk og karakter með því að klára leikinn sannfærandi eftir smá basl í byrjun.

Arsenal-liðið hefur þar með komist áfram úr riðlakeppninni á sautján tímabil í röð.

Arsenal endar í öðru sæti riðilsins með jafnmörg stig og Olympiakos en betri árangur í innbyrðisviðureignum. Bayern München fékk sex stigum meira og vann riðilinn.

Alfreð Finnbogason skoraði sigurmarkið í fyrri leiknum í London en fékk bara að spila í fjórar mínútur í þessum leik. Hann kom inná í stöðunni 3-0 fyrir Arsenal og gat lítið gert.

Olympiakos byrjaði leikinn vel og átti í fullu tré við Arsenal-liðið fyrstu tuttugu mínúturnar.  Aide Brown Ideye fékk fyrsta færi leiksins á tólftu mínútur og á þeirri tuttugustu voru heimamenn aftur nálægt því að skora þegar Felipe Pardo fékk gott skotfæri en hitti ekki markið.

Arsenal fór þá að ranka við sér og Mathieu Flamini átti skot í slána á 25. mínútu eftir undirbúning Joel Campbell.

Fjórum mínútum síðar voru gestirnir komnir yfir í leiknum og það var mikið léttir fyrir enska liðið. Olivier Giroud kom þá Arsenal í 1-0 á 29. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf frá Aaron Ramsey.

Laurent Koscielny var nálægt því að skora sjálfsmark í lok fyrri hálfleiks en skaut sem betur fer yfir eigið mark.

Seinni hálfleikurinn var ekki orðinn fjögurra mínútna gamall þegar Olivier Giroud var búinn að koma Arsenal-liðinu í 2-0. Olivier Giroud fékk þá boltann eftir laglegan undirbúning Joel Campbell og skoraði sitt annað mark í leiknum.

Olivier Giroud kláraði síðan þrennuna og um leið leikinn þegar hann kom Arsenal í 3-0 með marki úr vítaspyrnu á 67. mínútu. Vonir heimamanna voru nánast út enda þurfti liðið nú að skora þrjú mörk til að komast í sextán liða úrslitin.

Giroud kemur Arsenal í 1-0 Giroud kemur Arsenal í 2-0 Giroud fullkomnar þrennuna og kemur Arsenal í 3-0



Fleiri fréttir

Sjá meira


×