Innlent

Gildistöku náttúruverndarlaga frestað: „Sögulegur viðburður“

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Höskuldur Þórhallsson, formaður nefndarinnar (t.v.), og Katrín Jakobsdóttir varaformaður.
Höskuldur Þórhallsson, formaður nefndarinnar (t.v.), og Katrín Jakobsdóttir varaformaður. vísir/gva/stefán
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur gengið frá nefndaráliti um náttúruverndarlög þar sem lagt er til að gildistöku þeirra verði frestað til 1. júlí 2015 í stað þess að þau verði felld úr gildi.

„Við höfum tilgreint nokkur atriði umfram önnur sem við teljum að þurfi að skoða,“ segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður nefndarinnar, í samtali við Vísi.

„Í mínum huga er það sögulegur viðburður þegar það næst sátt um jafn viðamikið og umdeilt mál og lög um náttúruvernd vissulega eru. Ég held að við höfum náð að koma ró á umræðu sem hefur einkennst af bardögum úr skotgröfum.“

Katrín Jakobsdóttir, þingmaður VG og varaformaður nefndarinnar, tekur í sama streng. Hún segir í samtali við Vísi að mikil vinna og tími hafi farið í vinnslu málsins.

„Þetta var nú ekki lauflétt. Við erum búin að sitja með málið frá því í nóvember og gefa okkur tíma til þess að vinna það. En það er ástæða til að hrósa þessu vinnulagi. Við komumst að því að það var hægt að ná samkomulagi um það að falla frá því að afturkalla lögin. Það hefði að mínu mati verið mikið skref afturábak.“

Katrín segir hina raunverulegu áskorun felast í umræðu um þau atriði sem nefndarmenn eru ekki sammála um eða á því að skoða þurfi betur. Aðspurð segist hún þó vongóð um framhaldið.

„Atriðin sem við erum ekki sammála um eru færri en talið var í upphafi, það er mitt mat. Við höfum mikinn efnivið úr þeirri vinnu sem búið er að vinna. Ég fer í þá vinnu af fullum heilindum að ná framförum í þeirri nátturuvernd sem lögin boða.“

Nefndarálitið verður birt á vef Alþingis síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×