Lífið

Giftist Clooney í kjól frá Oscar de la Renta

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Amal og George.
Amal og George. vísir/getty
Mannréttindalögfræðingurinn Amal Alamuddin gekk að eiga leikarann George Clooney í Feneyjum á laugardaginn.

Amal klæddist brúðarkjól frá Oscar de la Renta samkvæmt heimildum vefsíðunnar WWD.

Eins og áður hefur komið fram klæddist George jakkafötum frá Armani.

Mannmargt var í brúðkaupinu en meðal gesta voru leikarinn Matt Damon og kona hans Luciana Barroso, leikaraparið Emily Blunt og John Krasinski og tónlistarmaðurinn Bono.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×