Lífið

Gift eftir rúmlega árs samband

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Jenny og Donnie voru trúlofuð í fjóra mánuði.
Jenny og Donnie voru trúlofuð í fjóra mánuði. vísir/getty
Jenny McCarthy og Donnie Wahlberg giftu sig í Illinois í gær. Athöfnin varði í um tuttugu mínútur og var aðeins nánustu fjölskyldumeðlimum og vinum boðið.

Donnie bað Jenny í apríl á þessu ári en þau byrjuðu að stinga saman nefjum í júlí í fyrra.

Þetta er annað hjónaband Jenny en hún var gift leikstjóranum John Mallory Asher á árunum 1999 til 2005.

Þetta er einnig annað hjónband Donnies en hann kvæntist Kim Fey árið 1999. Þau skildu árið 2008.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×