Innlent

Geysir gæti komið í leitirnar hefjist gos í Bárðarbungu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Haraldur Sigurðsson er einn virtasti eldfjallafræðingur landsins.
Haraldur Sigurðsson er einn virtasti eldfjallafræðingur landsins. vísir/anton brink
„Ég tel fremur litlar líkur á að gos verði nú innan öskju Bárðarbungu, en ef svo verður, þá er ekki útilokað að flakið af flugvélinni Geysir komi aftur fram í dagsljósið.“ Þetta skrifar Haraldur Sigurðsson, eldfjallafræðingur, á heimasíðu sína. „Nú þegar öll athygli þjóðarinnar beinist að Bárðarbungu í Vatnajökli, þá er tímabært að rifja upp merkilegan atburð sem gerðist þar árið 1950.“

Hinn 14.september árið 1950 fór Geysir, flugvél Loftleiða, í sína hinstu ferð. Brotlenti hún á suðaustanverðri Bárðarbungu, en vélin var á leið frá Lúxemborg með sex manna áhöfn, en enga farþega. Leitað var logandi ljósi að vélinni. Allar björgunarsveitir voru ræstar út, 15 flugvélar sveimuðu um 150 þúsund ferkílómetra svæði, þar af ein dönsk herflugvél. Fjórum dögum eftir brotlendinguna fannst vélin. Allir lifðu af, en sumir slasaðir.

„Björgunarsveit frá Akureyri kom fyrst á slysstað hinn 20. september og allir komust niður af jöklinum, heilu og höldnu.   Síðan hefur flugvélaflakið Geysir  grafist smátt og smátt í fönn innan öskju Bárðarbungu,“ skrifar Haraldur og hefur eftir Helga Björnssyni jöklafræðing að flakið kunni nú ef til vill að vera komið niður á um 100 metra dýpi í jöklinum.

Jörð skelfur nánast á hverri klukkustund sem líður við eldsumbrotasvæðið norðan Vatnajökuls. Flestir skjálftarnir við Bárðarbungu. Sérfræðingar segja ómögulegt að segja til um hvort gos muni hefjast í Bárðarbungu, en telja fullvíst að fleiri gos muni hefjast eftir að gosið í Holuhrauni fjarar út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×