Innlent

Geymsluskúr brann til kaldra kola á Stokkseyri

Gissur Sigurðsson skrifar
Ekki liggur fyrir hvort einhver verðmæti voru geymd í skúrnum, en það skýrist þegar samband næst við eigandann.
Ekki liggur fyrir hvort einhver verðmæti voru geymd í skúrnum, en það skýrist þegar samband næst við eigandann. Vísir/Stefán
Gamall geymsluskúr brann til kaldra kola á Stokkseyri í gærkvöldi, en vindátt var hagstæð þannig að nálæg hús voru aldrei í hættu.

Brunavarnir Árnessýslu komu á vettvang og slökktu í glæðunum. Ekki liggur fyrir hvort einhver verðmæti voru geymd í skúrnum, en það skýrist þegar samband næst við eigandann.

Eldsupptök eru ókunn, en ekkert rafmagn var í skúrnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×